- Námsbækur eru gagnrýndar fyrir að fjalla lítið um konur, börn og fólk sem hafði ekki mikil völd. Hvernig er þetta í þínum sögubókum? Er fjallað um eitthvað annað en það sem virðulegir karlar voru að gera? Árið 1974 spurði Vilborg Dagbjartsdóttir: hvar er amma? Hvar er langamma? Hvernig eru námsbækur í sögu núna?
- Finndu gamla ljósmynd að eigin vali. Notið greiningarlykilinn og rannsakið myndir sem þið sjálf finnið. Mörg sveitarfélög eiga sín eigin myndasöfn, leitarorðið óþekkt eða börn gefur oft góðar niðurstöður: sarpur.is Ljósmyndasafn Austurlands, Ljósmyndasafn Akraness, myndasafn.skagastrond.is, myndasafn.isafjordur.is
- Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur fjallar um hvernig konur eru skrifaðar út úr sögunni.
- Library of Congress hefur viðamikla heimasíðu með efni fyrir kennara: kennsluáætlanir og gögn til að kenna um kvennasögu
- Það mætti nota ensku útgáfuna af spurningalistanum í enskukennslu Primary sourse analysis tool: Observe Reflect Question og skoða myndir af heimsíðu Library of Congress, til dæmis Mynd af spænsk-amerískum stelpum, mynd af börnum í leik, strákar saga timbur, fleiri myndir af börnum, sýna fræga myndaseríu af fátækri konu frá 1936 sem lítið er vitað um.